Upplýsingar

Innsendingar - skilafrestur

Innsendingarfrestur fyrir Lúður rennur út þann 22. janúar 2026 (Early bird gildir til 09. janúar 2026)

Innsendingafrestur fyrir Áru rennur út 29.janúar 2026 (Early bird gildir til 22.janúar 2026)

Verð
Earlybird verð: 12.800 kr. hver innsending (Gildir til 9. janúar)
Hefðbundið verð: 16.700kr
Earlybird verð herferðarflokkur: 59.000 kr. (Gildir til 9. janúar)
Hefðbundið verð herferðarflokkur: 76.700 kr.

Earlybird verð ÁRA: 64.000 kr. (Gildir til 22. janúar)
Hefðbundið verð ÁRA: 83.700 kr.

10% afsláttur er veittur ef sent er inn fyrir meira en 250.000 kr.
15% afsláttur er veittur ef sent er inn fyrir meira en 400.000 kr.

Þátttökureglur

Myndir skulu ekki vera stærri en 5MB og af gerðinni jpeg eða png. Mælt er með að allar myndir séu af stærðinni 1920 x 1080 px.

Myndbönd skulu ekki vera stærri en 500 MB og af gerðinni mov eða mp4.

Öllum innsendingum þarf að fylgja aðalmynd- heil mynd sem má fylla út í ramma- í stærð 1920 x 1080 px. Myndin er notuð í dagpblaðaprent og á sýningartjaldi á verðlaunakvöldi.

Óheimilt er að setja inn árangurstölur nema þar sem það er sérstaklega tekið fram (PR flokkur)

Sé þörf á að vekja sérstaka athygli á tilteknum þáttum innsendra auglýsinga er gott að nýta síður fyrir frjálsa nýtingu til þess. Sem dæmi um slíkt væri t.d. að þysja inn á myndefni eða texta sem óskað er eftir að dómnefnd veiti sérstaka athygli.

Ekki má skila inn „case study“-myndbandi um efni, nema þar sem það er sérstaklega tekið fram.

Ekki er heimilt að hljóðsetja myndbandsupptökur eða myndbönd með öðrum hljóðum en þeim sem birtust þeim sem sáu auglýsinguna upphaflega.

Nákvæmur kreditlisti yfir eftirfarandi fagsvið skal fylgja innsendingum: hönnuðir, texta- og hugmyndasmiðir, markaðsráðgjafi á stofu, starfsfólk fyrirtækis (markaðsdeildar) sem að verki kom, leikstjóri, framleiðandi, ljósmyndari, auk annarra sem að verki komu og rétt þykir að tiltaka.

Efni sem sent er inn áskilur ÍMARK sér rétt til að birta opinberlega í tengslum við kynningu keppninnar og frétta í kjölfar hennar. Dómnefnd áskilur sér rétt til að ógilda innsendingar sem ekki fara að reglum eða sendar eru inn í ranga flokka.

Í öllum flokkum er dæmt út frá því hversu skapandi hugmyndin var og hversu vel útfærð.

Dómnefnd áskilur sér rétt að ógilda innsendingar sem ekki fara að reglum..

Hafðu samband

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband. Tengiliður keppninnar er María Hjálmarsdóttir, viðburða- og verkefnastjóri hjá Ímark.

Sími: 8482218
Heimasíða: www.imark.is
Email: maria@imark.is


IMARK

ÍMARK|imark@imark.is|imark.is

© iMark. Allur réttur áskilinn.